Hér mun ég röfla um allt á milli himins og jarðar!!! Það sem hér kemur fram eru alfarið mínar skoðanir. Ef þið eruð (ó)sammála þá megið þið láta mig vita í athugasemdum!
Mér þykir það ótrúlega kjánalegt að heyra fólk vera að væla yfir því að ekki megi hækka skatt á vörum sem innihalda sykur, en það megi hækka skatta á tóbaki og áfengi vegna þeirra skaðlegra áhrifa sem það hefur á mannslíkamann og þann kostnað sem það hefur í för með sér fyrir heilbrigðiskerfið.
Ég, ólíkt mörgum öðrum, fagna þeirri ákvörðun að núna skuli vera settir sér skattar á sykurvörur.
Ef við lítum bara hlutlaus á málið, þá er dauði vegna offitu tengdra sjúkdóma, og fjárhagslegur kostnaður fyrir heilbrigðiskerfið, margfalt á við tóbaksnotkun og áfengis.
Hættið nú að væla um hversu dýrt sé að kaupa sykurinn ykkar og farið nú að versla hollan mat, því jú hollari matur er að verða ódýrari en hinn óholli.
Arion banki virðist ætla að hygla þeim útrásarvíkingum sem komu okkur á rassgatið, þá með því að fella niður skuldir á fyrirtækjum hjá þeim. Þó það fari einstaklega í taugarnar á mér, þá ætla ég samt ekki að gera þá forheimsku að umtalsefni mínu, frekar hvað ég vil sjá gert við fyrirtækið.
Í fyrsta lagi langar mig að 1998 ehf. verði gert gjaldþrota og yfirtekið af bankanum. Eftir að það er búið að gera það, þá vil ég sjá það hlutað niður í sjö hluta, sem yrðu eftirtaldir; Hagkaup, 10-11, Bónus, Aðföng, Bananar, Fersk kjötvara og svo smávöruverslanirnar.
Að þessu loknu væru hver og einn hluti settur upp til sölu og hámarkað verð hvers og eins hlutararins, en þó með því skilyrði að enginn einn einstaklingur eða fyrirtæki gæti keypt tvo hluta. Þannig yrðu búin til sjö sjálfstæð fyrirtæki.
Þjóðin öll myndi hagnast á þessu og fá þá raunverulega samkeppni sem hún er búin að vera að biðja um í áratugi.
Að þessu loknu, eða jafnvel strax færi efnahagsráðherrar í það að semja lög fyrir samkeppniseftirlitið þar sem skýrt er tekið fram að ekkert fyrirtæki í samkeppni megi vera með stærri en 33% af heildar markaði. Ef fyrirtæki sem brýtur gegn þess fengi í fyrstu viðvörun, næst sektir og að lokum yrði fyrirtækið tekið yfir og hlutað niður til þess að tryggja að það væri ekki yfir hámarki.
Þessar reglur eru all staðar í kringum okkur, þ.e.a.s. hámarks markaðshlutdeild. Við erum í raun ekki með þessi lög sem tryggja heilbrigði markaðarins, einfaldlega vegna þess að markaðurinn sjálfur átti að redda hlutunum hérna. Nýfrjálshyggja í sinni skýrustu mynd.
Í júlí tilkynnti GoogleGoogle það að það ætlaði að fara að framleiða sitt eigi stýrikerfi. Þessi frétt þótti með þeim stærstu í tölvubransanum og fékk nána umfjöllun á helstu sjónvarpsfréttum heims. Núna rúmum 3 mánuðum seinna er komið sýniseintak af stýrikerfinu og hvernig það mun virka. Í raun er erfitt að kalla stýrikerfið stýrikerfi, einfaldlega vegna þess að að í því verður ekkert annað en vefskoðari. Jebb, það verður enginn möguleik (til að byrja með) að hlaða inn forritum, s.s. ekkert office, msn eða neitt annað. Notendur þessa stýrikerfis verða nýta sér eingöngu þau forrit sem eru í boði á netinu. Þó tölvan verði netlaus, þá er nú samt hægt að vinna á henni þökk sé Google Gears.
Það sem er frekar töff við þetta stýrikerfi eru einna fimm hlutir, og þeir eru;
að það mun gera við sig sjálft ef það skemmist.
að þú þarft aldrei að uppfæra forrit, því þau eru jú á netinu.
að stýrikerfið sjálft mun gera við sig sjálft ef það skemmist.
að vefskoðarinn (ChromeChrome) er sjálft stýrikerfið.
að það verður alveg leiftursnöggt, sér í lagi þar sem engin forrit þurfa að ræsa sig upp í byrjun.
Stýrikerfið sjálft verður byggt fyrir „Netbooks“, þessar pinkulitlar. Þetta er ekki stýrikerfi sem er ætlað að keyra á borðtölvu. Stýrikerfið er hannað til þess að ganga á flash disk, og mun kerfið ekki hafa neina drivera til að styðjast við vegna þess. Chrome stýrikerfið verður hægt að keyra á lágmarks hörðum diski, í raun mun ekki þurfa neitt auka minni vegna þess að allt mun vera geymt á netinu sjálfu.
En hérna er myndband af manneskju að prófa það, svo að þið getið séð hvernig það mun virka. En athugið þó að það verður ekki komið í almenna notkun fyrr en eftir rúmt ár, jafnvel tvö.
EinEin reviews af helstu ástæðunum fyrir því að ég skrifa um þetta er sú að fólk bókstaflega fríkaði út og var verulega pirrað þegar FacebookFacebook breytti notendaútliti sínu. Mér sýnist breytingarnar vera bara til góðs hjá GoogleGoogle. Verið er að gera síðuna einfaldari í notkun og auka-valmöguleikar verða ekki eins faldir og þeir hafa verið. Hér fyrir neðan mun ég útlista betur hvernig breytingarnar verða hjá leitarvélinni. Athugið að þessar breytingar eru bara ný byrjaðar að rúlla út, og munu því ekki byrja að birtast hjá öllum strax. Einhver tími mun líða uns þetta verður komið í notkun hjá öllum.
Upphafs síðan hjá Google
Í fyrsta lagi þá verður upphafs síðunni breytt. Leitarhnappurinn og „freista gæfunnar“ verða fegraðir upp og málaðir blár. En um leið verða nánari leitarmöguleikar fjarlægðir, sem eru núna til hægri við slánna, og settir í betra form (sem útskýrist betur hér fyrir neðan). Mun þetta eiga góða samleið við þá breytingu sem nú þegar hefur verið gerð en þá var sjálf sláin stækkuð. Með þessu verður síðan gerði mun einfaldari og minnimalískari, meira þá í átt til þess hvernig hún var upprunalega þegar Google hóf sig til flugs.
Nýja niðurstöðusíðan hjá Google
Þegar búið er svo að slá inn leitarorðin þá mun seinni helmingur breytinganna koma í ljós. En þar er í raun einna helsta breytingin sem verður gerð á síðunni sjálfri. Eins og ég nefndi áður þá verða nánari leitarvalmöguleikar settir í þægilegri form. Vinstra meginn við sjálfa heimasíðuna mun koma hliðarstika með leitarvalmöguleikum, sem áður voru faldir í hlekkja formi, en verða nú hnappar. Þá verður auðsjáanlegra að leita að myndum, myndböndum o.fl.Með þessu verða niðurstöðurnar þægilegri í yfirlestri og því ætti tími sem fer í notkun á heimasíðunni sjálfri að minnka. Hlutur sem Google hefur verið að keppast við frá upphafi.
Nýja hliðarstikan hjá Google
Fyrir neðan hnappanna birtast svo tillögur um annað efni tengt því sem viðkomandi var að leita að, t.d. ef þú leitar eftir pizzu þá færðu tillögu um kjúkling, taco o.fl. Að lokum fyrir neðan það kemur upp valmöguleiki sem mér þykir skipta mestu máli og það er að geta leitað auðveldlega að efni eftir hversu nýtt það er. Ef eitthvað er að gerast í heiminum þá viltu finna sem nýjastar upplýsingar um það sem fyrst. Til merkis um það að Google er að reyna tengja niðurstöður sínar við nýjustu upplýsingar, til samræmis við það hafa Google (og Bing) gert samning um aðgang að stöðu uppfærslum og tengla dreifingum hjá TwitterTwitter. Google reyndi að fá aðgang að Facebook, en var hafnað, í stað þess gerði Facebook bara samning við Bing.
Sýnilegri leitartillögur
Allar þessar breytingar má væntanlega rekja til helsta samkeppnisaðila Google, BingBing leitarvélin frá Microsoft. En þeir hafa verið að auka við sig hlutdeild af leitarmarkaðinum hratt, en þó bara til að byrja með á kostnað YahooYahoo! og minni véla til að byrja með. Er því hægt að líta á þetta sem nokkurs konar fyrirfram aðgerða hjá Google til að koma í veg fyrir minni hlutdeild á leitarmarkaðinum.
Myndirnar og eitthvað af upplýsingum eru fengnar af síðunni Search Engine Land.
Hér mun ég röfla um allt á milli himins og jarðar!!!
Það sem hér kemur fram eru alfarið mínar skoðanir. Ef þið eruð (ó)sammála þá megið þið láta mig vita í athugasemdum!