Ritgerð

View Comments

Posted on : 10-10-2005 | By : Valgeir Helgi | In : Stjórnmál

Jæja, þá er ég búinn að fá úr fyrstu ritgerðinni minni. Hún kom ekkert alltof vel út en þeir vankantar sem voru á henni eru sem betur fer auðveldir í því að laga. Ég ætla bara að taka þetta sem fræðilega gagnrýni á ritgerðina og hafa bara þessi comment sem leiðbeinandi, frekar en að vera að sökkva mér ofan í þá hugsun að ég hafi brugðist svona illa. Því eftir allt saman þá var þetta bara fyrsta ritgerðin mín hérna í H.Í. Einnig til þess að tryggja að tvenn þessara vankanta komi ekki upp aftur þá mun ég fá einhverja góða til þess að prófarkalesa ritgerðirnar fyrir mig áður en ég skila henni inn. En þá er best að halda áfram með næstu og hafa þetta bara til hliðsjónar frekar en hitt.

Einnig var ég líka að frétta það í dag að Inngangur að Stjórnmálafræði verður ekki kennd á fimmtudögum í nóvember, einnig er ég búinn í dæmatímunum í Hagfræði á laugardögum. Þessar tvær littlar breytingar valda því núna að ég er alltaf með 4 daga helgi.

Annars kveð ég bara í bili…

  • Hildur
    Hér úti köllum við þetta positiv feedback, positiv af því þú getur ekki gert neitt neikvætt með þetta, bara nýtt þér þetta til þess að verða betri.
    Gangi þér rosalega vel með næstu ritgerð.

    Hilsen fra Danmark,

    Hildur systa
  • Davido
    Thad er alltaf gott ad fa feedback. hlutirnir verda aldrei betir an thess.
    Djofull ertu heppinn med helgina mar, eg er med 1 dag friann a viku. urrrrr. Anyways, keep up the good work :)
blog comments powered by Disqus