Umræðan um myndina hans Helga Felixsonar, „Guð Blessi Ísland“, hefur ekki snúist mikið um hvað myndin fjallar og hvernig sýn myndin kastar á þetta ár sem er liðið. Heldur hefur umræðan snúist um hvort það hafi verið rétt hjá honum að hafaa myndavélina í gangi viðmælendum óafvitandi. Þeir hafi þar verið teknir á launi.
Rökin hafa verið þannig að meira slæmt sé af því að hljótast ef menn taka viðtöl við menn óafvitandi. Blaðamenn eigi erfiðara að nálgast viðmælendur þar sem þeir treysti sér ekki til þess að tjá sig yfirhöfuð þar sem þeir viti ekki hvort þeir séu „on“ eða „off the record“.
Ég er reyndar þessu ósammála þar sem ég tel að menn sem tala við fjölmiðla eigi að gera ráð fyrir því að vitna verð ávallt í þeirra orð og gjörðir. Við viljum fá hérna almennilega rannsóknarblaðamennsku, þar sem blaðamenn rannsaki alveg í kjölinn það sem misfarist hefur í samfélaginu okkar. Þeir að mínu mati eigi að vinna eftir þeim kjörorðum að þeir eru alltaf „on the record“.
Vissulegar eru gallar á því að vera alltaf reiðubúinn að nýta þær upplýsingar sem falla þeim í té, óháð því hvort menni segji „off the record“. Menn hafa séð þessa þróun í BNA, þar sem fjölmiðlar eru í alvörunni að vinna sína vinnu. Þeir hafa vissulega ákveðið ægisvald, þar sem þeir eru dagskrársetjandi. En ég held að þessi þróun mætti vera hér líka, í stað þessa blessaða „Já kór“ sem við höfum fengið að kynnast, þar sem útrásarvíkingarnir voru hylltir meira en allt, og m.a.s. þeim hlupið til varnar í fjölmiðlunum.
Ef menn geta treyst því að þeir geti stjórnað því hvað fer í fjölmiðla með því að segja að þetta sé „off the record“ þá er strax byrjað að hefta möguleika fjölmiðla til aðhalds.
Líka ef við heimildarmyndargerð er bannað að nota leynilegar upptökur, hversu mikið geta þær þá fjallað um efnið sem þær eru að rannsaka. Við getum í raun gleymt því að þær myndir sem voru einna helst fræðandi um hverskonar spillingu í heiminum hafi verið gagnslausar.
Þeir sem vilja gagnrýna rang-gerðir annara og hafa möguleikan á því að standa vörð um almenning, verður að mínu mati að hafa þetta vopn í vopnabúrinu. Ef þú tekur þetta vopn frá, þá ertu búin að fjarlægja eitt af sterkustu upplýsingarvopnum sem fjölmiðlar hafa. Við getumekki alltaf treyst á það að skjölum sé ekki eytt og upplýsingum breytt. Við verðum að hafa fjölmiðla sem hafa þau vopn til staðar að vernda almenning.
Ég styð Helga Felixson í því að taka myndir í laumi, og ná þannig að berja úr hendi vopn almannatengla og ímyndarráðgjafa auðmanna.
View Comments