Bæbæ McDonalds

View Comments

Posted on : 27-10-2009 | By : Valgeir Helgi | In : Stjórnmál, Video

Super Size MeÞað er greinilega stór frétt í útlöndum, og hér, að McDonalds vörumerki sé að hætta hérna. Það eru líka rosalega margir sem kveðja vörumerkið með harmkveini, eða fögnuði. Ég fyrir mínar sakir á ekki eftir að sakna þess að geta fengið mér múrstein í magann. Þetta eru að mínu mati einhver versti skyndibiti sem hægt er að fá sér, á eftir matnum á BSÍ. Þó McDonalds sé mismunandi hversu vel, eða illa, hann leikur við bragðlauka hvers og eins, þá er hann alveg einstaklega óhollur fyrir hvern þann sem lætur hann í munn sér. Hægt er að benda á góða heimildarmynd þar sem farið var yfir hversu óhollur hann er fyrir líkamann. Heimildarmyndin var vel vinsæl hér, og annar staðar í heiminum, myndin heitir „Super size meSuper Size Me reviewsSuper Size Me reviews„. Hérna er kynningarmyndbandið fyrir myndina.

Þó að ég hafi talið allt upp hérna að ofan, þá er ég ekki einn þeirra sem vildu banna þennan stað til þess að bæta heilsu fólks, því það er margt fleira sem er ekki hollt. Þess til sönnunnar þarf ekki að hlaupa langt, gott dæmi er Nonnabátur, Hlölli, Pizza Hut, Hrói Höttur og margt margt fleira.

Það sem fer í taugarnar á mér er að erlendir fjölmiðlar taka þetta sem merki um hversu illa statt Ísland sé. En þeir taka hvergi fram að það eru reglur McDonalds sem valda því að þeir séu að hætta hér á landi. Með því að neyða leyfishafann til að versla allar sínar vörur frá Þýskalandi. Þó að hagstæðara væri að nýta innlenda vöru í framleiðslu skyndibitans, sem og rekstraraðilinn ætlar að gera hjá vörumerkinu sem tekur við, MetroMetro reviewsMetro reviews. Því í raun er það ekki íslenska efnahaginum algjörlega að kenna að McDonalds hætti, frekar viljaleysi eiganda vörumerkisins til að leyfa rekstraraðilum að kaupa innlent hráefni og útbúa það svo að stöðlum sínum.

AnnaAnna reviewsAnna reviewsð sem fer verulega í taugarnar hjá mér er að í öllum erlendum fjölmiðlum er talað um að eigandi vörumerkisins hafi ákveðið að hætta hérna á Íslandi, frekar en að taka það fram að það er rekstraraðillinn sem ákveður að hætta með merkið. McDonalds er í raun ekki ákvörðunnartakinn, frekar er þetta ísl. ákvörðun með sátt við McDonalds.

Að lokum er pirringur minn yfir því að ekki er tekið fram í neinum af þessum erlendu fjölmiðlum að þó að vörumerkið fari, þá mun annað koma í staðinn. Fólk mun halda vinnunni sinni og við munum í raun græða á þessu þar sem innlendir framleiðendur fá meira fyrir sinn snúð.

Þetta er því ekki alslæm frétt fyrir Ísland, fremur væri hægt að líta á hana í góðu ljósi efnahagslega séð. Þó ekki sé talað um heilbrigðislegum sjónarmiðum.

Skemmtilegur punktur í viðbót væri að við erum ekki lengur í McDonalds-friðarstuðlinum. Friðarstuðulinn gengur út á að ekkert land sem er McDonalds starfandi í landinu sýnu hefur farið í stríð við annað sem er líka með keðjuna hjá sér. Kannski kominn tími til að sanna að þessi stuðull er bara kjánaleg staðreynd. Við getum núna verið svarti svanurinn sem afsannar kennninguna.

En hver er þín skoðun á þessu? Deildu því með mér, þá annað hvort með athugasemd eða í könnunni hér fyrir neðan.

Hvert er þitt álit á brottför McDonalds?

View Results

Loading ... Loading ...
  • Well, since Iceland is a black swan in so many ways, including of course that it does not have a standing army (nor even a bilateral protection agreement, only a multinational one, as far as I know the only country to be so completely non-militaristic) I think it is fitting that Iceland be unique in this respect as well. But I have to tell you, when my son was here with me this summer, it sure was nice to be able to tell him we were going to McDonalds. He has however gotten a lot less picky about eating lately.
  • Well, there was a bilateral defense agreement with the US, but that changed a couple of years ago.

    When you visit next time you can always go for KFC, Subway or Burger King. Shouldn't be a problem for your kid to get something similar to home.
  • Mér gæti ekki verið meira sama þó að McDonalds sé að hætta, þetta er ógeðslegur matur! Og ég er sammála þér, asnalegt að erlendir fjölmiðlar sýni bara einsleita og ranga mynd af þessu. Ég er viss um að maturinn á Metró verður betri en McDonalds þar sem að ég er viss um að íslenska hráefnið er mun betra en það þýska ;-)
  • Það þýska var að öllum líkindum fullt af þessum klassísku rotvarnarefnum og fleira. Ég fyrir mínar sakir hlakka til að fá mér borgara á Metró.
blog comments powered by Disqus