Þessi færsla er í tveimur liðum og fjallar ekki neitt um pólitík. Enda kannski ekki skrýtið þar sem ég er kominn með hálfgert ógeð á henni í bili, en það mun lagast örugglega strax á morgun ef ég þekki mig rétt.
Ég og nokkrir félagar mínir erum nú að leita okkur að íbúð til að leigja. Við erum búnir að fá okkur að aðgang að leigulistanum. Við ætlum að vera nokkrir saman að leigja því það er einfaldlega svo mikið ódýrara. Þegar íbúð fyrir einn leigist á um 60. þús. (með leigubótum og heppni) vs. þrír saman og í kringum 40. þús. á mann. Þá er klárlega málið að rotta okkur saman.
Ég ætlaði rétt fyrir hrun að festa kaup á íbúð, en í sömu viku féllu bankarnir og sem betur fer var ég varla búinn að skrá mig í greiðslumat. Ég snarlega hætti við og er því ógeðslega feginn. Þannig að málið er leigumarkaðurinn.
——————–
Í dag skellti ég mér í klippingu og fékk mér mjög svo plain klippingu. Ég rakaði mig líka alveg, það þykir kannski smá mikil nýlunda hjá þeim sem þekkja mig. Enda ekki alltaf duglegasti maðurinn í rakstri. Er samt að hugsa um að bæta mig í þeim málum og prófa að vera nýrakaður í einhvern tíma. En það fyndnasta við þetta er samt að mér finnst ég líta út fyrir að vera ekki löglegur til þess að dreypa alkahól. Þið getið kannski dæmt um það sjálf á þessari mynd sem ég læt fylgja hérna.

Categories
Tag Cloud
Blog RSS
Comments RSS
Last 50 Posts
Back
Back
Void « Default
Life
Earth
Wind
Water
Fire
Light 