Mér þykir það vera mikið til miður að núna skuli menn vera að berjast gegn því að menn geti skrifað undir nafnleysi. Það á nú að taka á öllum þeim meiðyrðum sem kastað er fram undir nafnleysi. Öllum því slæma sem er kastað fram í skjólinu. En menn mega ekki gleyma því að það er nú svo að þetta er tvíeggjað sverð. Ef einstaklingur hefur ekki þorað að koma fram með þær upplýsingar af ótta við hefnd, þá hafa þeir yfirleitt nýtt sér þessi nafnlausu tæki til þess. Nýjasta dæmið um það er lánaskýrsla Kaupþings á Wikileaks.org.
Nafnleysið hefur leyft fólki að segja sannleika sem hefur ekki mátt þola ljósið af þeim sem völdin hafa. Ég af þessari ástæðu er ekki fylgjandi því að menn fari nú geysa fram í einhverri krossriddaraherferð gegn nafnleysinu.
Ef menn ætla nú að fara gegn nafnleysinu, verður þá farið gegn Orðinu á götunni, Staksteinum, Svarthöfða og Reykjavíkurbréfinu? Eða er nafnleysi sumra æðra öðrum? Er það kannski bara svo að við séum að sjá hræðslu ráðamanna við nýja tækni sem þeir geta ekki stjórnað?

Categories
Tag Cloud
Blog RSS
Comments RSS
Last 50 Posts
Back
Back
Void « Default
Life
Earth
Wind
Water
Fire
Light 