Orkuleysi Atorku

Áhugavert að lesa um hvernig ríkisstjórnin er kölluð ónöfnum af pirruðum hluthöfum. Árni Þór Árnason gengur einna lengst í því í frétt Pressunnar. Kallar hann ríkisstjórnina „kommúnistastjórn“ af því að það er ekki viljugt að leggja fé í gjaldþrota fyrirtæki. Þegar það er í raun skilanefnda bankanna sem ákveða það. Ekki veit  ég til þess að ríkisstjórnin hafi lagt út þá línu, og myndi það þykja mér frekar vafasamt ef svo væri. Gæti ekki einfaldlega verið svo að skilanefndirnar sjá ekki möguleika á því að fyrirtæki eins og Atorka séu ekki borgunnar hæf fyrir auka 20 milljörðum? Fyrirtækið er jú búið að vera í greiðslustöðvun síðan í febrúar. Fyrirtækið hefur sem sagt ekki greitt af sínum skuldum í meira en sjö mánuði.

Er það ekki frekar svo að kröfuhafar bankanna séu orðnir langþreyttir á því að henda fjármagni sínu í dauðvona fyrirtæki og gefa þeim hverja líflínuna á fætur öðrum. Þegar þeir gætu frekar nýtt peninginn í að hjálpa við stofnun fyrirtækja sem munu greiða sínar skuldir og færa þeim ávöxtun á fé sitt (sem þeir vissulega mættu gera betur).

Ef fyrirtækið á svona mikla von á því að geta lifað þetta af, og í raun sé arðsöm fjárfesting fyrir framtíðina, afhverju láta þeir þá ekki sitt eigið fé í fyrirtækið? Gæti kannski verið svo að þeir sjálfir treysta ekki því að fyrirtækið muni lifa þetta af? Afhverju á ríkið og bankarnir alltaf að bjarga fyrirtækjum sem voru illa rekin og bjuggu sér ekki vel í haginn þegar góðærið var, fóru heldur geyst í gróðærinu?

Ekki það að sum fyrirtæki eru vissulega björgunnar verð, en það verður líka að velja og hafna út frá rekstrar- og hagvaxtarforsendum. Ég fyrir mínar sakir er kominn með ógeð af því að hluthafar og stjórnarmenn fyrirtækja ætlast alltaf til þess að ríkið og bankar bjargi þeim úr sínum eigin skít, í stað þess að gera sér grein fyrir því að þeir sjálfir þurfi að borga fyrir sín eigin mistök. Finnst sem hugmyndir hægri manna gangi ekkert út á sjálfsábyrgð á sínum eigin mistökum. Ríkið og bankar eiga greinilega að borga brúsann fyrir öll fyrirtæki og auðmenn með peningum skattborgar og almennings.



  • Jóhann
    Kannski best að breyta nafninu í Örorka.
  • Jafnvel "VanOrka"? :D
blog comments powered by Disqus

Google Friend Connect

Lifestream