Í júlí tilkynnti GoogleGoogle
það að það ætlaði að fara að framleiða sitt eigi stýrikerfi. Þessi frétt þótti með þeim stærstu í tölvubransanum og fékk nána umfjöllun á helstu sjónvarpsfréttum heims. Núna rúmum 3 mánuðum seinna er komið sýniseintak af stýrikerfinu og hvernig það mun virka. Í raun er erfitt að kalla stýrikerfið stýrikerfi, einfaldlega vegna þess að að í því verður ekkert annað en vefskoðari. Jebb, það verður enginn möguleik (til að byrja með) að hlaða inn forritum, s.s. ekkert office, msn eða neitt annað. Notendur þessa stýrikerfis verða nýta sér eingöngu þau forrit sem eru í boði á netinu. Þó tölvan verði netlaus, þá er nú samt hægt að vinna á henni þökk sé Google Gears.
Það sem er frekar töff við þetta stýrikerfi eru einna fimm hlutir, og þeir eru;
- að það mun gera við sig sjálft ef það skemmist.
- að þú þarft aldrei að uppfæra forrit, því þau eru jú á netinu.
- að stýrikerfið sjálft mun gera við sig sjálft ef það skemmist.
- að vefskoðarinn (ChromeChrome
) er sjálft stýrikerfið. - að það verður alveg leiftursnöggt, sér í lagi þar sem engin forrit þurfa að ræsa sig upp í byrjun.
Stýrikerfið sjálft verður byggt fyrir „Netbooks“, þessar pinkulitlar. Þetta er ekki stýrikerfi sem er ætlað að keyra á borðtölvu. Stýrikerfið er hannað til þess að ganga á flash disk, og mun kerfið ekki hafa neina drivera til að styðjast við vegna þess. Chrome stýrikerfið verður hægt að keyra á lágmarks hörðum diski, í raun mun ekki þurfa neitt auka minni vegna þess að allt mun vera geymt á netinu sjálfu.
En hérna er myndband af manneskju að prófa það, svo að þið getið séð hvernig það mun virka. En athugið þó að það verður ekki komið í almenna notkun fyrr en eftir rúmt ár, jafnvel tvö.
![Reblog this post [with Zemanta]](http://img.zemanta.com/reblog_e.png?x-id=269224ff-755e-4e07-8345-99aafafeeffd)
View Comments