03 nóv. 2009 @ 4:09 f.h. 

Velti því stundum fyrir mér hvort að Sjálfstæðisflokkurinn sé ekki að starfa með ráðum og dáðum fyrir fólkið í landinu. Að þau séu í raun að starfa eftir hugsjón sem á sér fyllilega stöðu í nútíma samfélagi. Þeirra hugsjón sé eitthvað sem ekki gangi út á sérhagsmunagæslu, auðtryggingu þeirra ríku, auknar stéttarkleyfar. Þeirra hugsjón sé í raun um að gefa öllum tækifæri óháð fjárhag og samfélagslegri stöðu, nokkuð sem þeir vilja hamra ítrekað á í hverjum kosningum.

En þá taka þeir sig til og gera eitthvað sem sýnir mann hina raunverulega hugsjón sem þeir starfa eftir. Þegar þeir eru ekki að verja útrásarvíkinga sem komu okkur á hausinn, eða reyna að tryggja að fáir sérvaldir menn fái að sitja að auðlindum okkar og þurfa ekki að borga fyrir það, þá eru þeir að tryggja að hinir verst stöddu fái ekki rönd við reist.

Alveg snilldarlegt dæmi um þessa firrtu hugsjón er í raun nýjasta útspil Reykjavíkurborgar, með Hönnu Birnu Borgarstjóra fremstan í broddi, að banna fólki að hafa börnin á leikskóla svo þau geti nú unnið á meðan. Til hvers að vinna, jú, til þess að geta borgað niður verðtryggingarflugið og gengisfallið á skuldum sínum. En, nei, þar sem þeir lægst settu eiga ekki efni á því að borga skuldir sínar undir eins, þá skal því hætt að koma með börnin á leikskóla. Hvar skulu þá börn vera á meðan foreldrar vinna niður skuldir sínar við bankakerfið, stjórnkerfið o.fl.?

Vítahring skuldarans á að tryggja hjá borginni, hann skal ekki geta unnið niður skuldir sínar.

Til hamingju Sjálfstæðisflokkur með að sýna að ykkur er svo skít sama um þá sem verst hafa það. Mikið er ég feginn því að búa í Hafnarfirði, þar sem stjórnkerfið gengur ekki út á að tryggja vansæld skuldarans og vitahring hans, heldur aðlögun og hjálp.

Ef þið viljið fá að vita hvaðan þetta raus mitt til kemur frá, þá er það héðan: http://www.visir.is/article/20091103/FRETTIR01/181891935/-1

Posted By: Valgeir Helgi
Last Edit: 18 nóv. 2009 @ 03:34 f.h.

EmailPermalink
Tags
Categories: Stjórnmál


blog comments powered by Disqus

 Last 50 Posts
Change Theme...
  • Users » 1
  • Posts/Pages » 545
  • Comments » 578
Change Theme...
  • VoidVoid « Default
  • LifeLife
  • EarthEarth
  • WindWind
  • WaterWater
  • FireFire
  • LightLight

Um mig



    No Child Pages.

Gestabók



    No Child Pages.