Raunverulegur Þjóðarhagur

View Comments

Posted on : 25-11-2009 | By : Valgeir Helgi | In : Stjórnmál

Arion banki virðist ætla að hygla þeim útrásarvíkingum sem komu okkur á rassgatið, þá með því að fella niður skuldir á fyrirtækjum hjá þeim. Þó það fari einstaklega í taugarnar á mér, þá ætla ég samt ekki að gera þá forheimsku að umtalsefni mínu, frekar hvað ég vil sjá gert við fyrirtækið.

Í fyrsta lagi langar mig að 1998 ehf. verði gert gjaldþrota og yfirtekið af bankanum. Eftir að það er búið að gera það, þá vil ég sjá það hlutað niður í sjö hluta, sem yrðu eftirtaldir; Hagkaup, 10-11, Bónus, Aðföng, Bananar, Fersk kjötvara og svo smávöruverslanirnar.

Að þessu loknu væru hver og einn hluti settur upp til sölu og hámarkað verð hvers og eins hlutararins, en þó með því skilyrði að enginn einn einstaklingur eða fyrirtæki gæti keypt tvo hluta. Þannig yrðu búin til sjö sjálfstæð fyrirtæki.

Þjóðin öll myndi hagnast á þessu og fá þá raunverulega samkeppni sem hún er búin að vera að biðja um í áratugi.

Að þessu loknu, eða jafnvel strax færi efnahagsráðherrar í það að semja lög fyrir samkeppniseftirlitið þar sem skýrt er tekið fram að ekkert fyrirtæki í samkeppni megi vera með stærri en 33% af heildar markaði. Ef fyrirtæki sem brýtur gegn þess fengi í fyrstu viðvörun, næst sektir og að lokum yrði fyrirtækið tekið yfir og hlutað niður til þess að tryggja að það væri ekki yfir hámarki.

Þessar reglur eru all staðar í kringum okkur, þ.e.a.s. hámarks markaðshlutdeild. Við erum í raun ekki með þessi lög sem tryggja heilbrigði markaðarins, einfaldlega vegna þess að markaðurinn sjálfur átti að redda hlutunum hérna. Nýfrjálshyggja í sinni skýrustu mynd.

Reblog this post [with Zemanta]
blog comments powered by Disqus