09 des. 2009 @ 3:49 e.h. 

Mér þykir það ótrúlega kjánalegt að heyra fólk vera að væla yfir því að ekki megi hækka skatt á vörum sem innihalda sykur, en það megi hækka skatta á tóbaki og áfengi vegna þeirra skaðlegra áhrifa sem það hefur á mannslíkamann og þann kostnað sem það hefur í för með sér fyrir heilbrigðiskerfið.

Ég, ólíkt mörgum öðrum, fagna þeirri ákvörðun að núna skuli vera settir sér skattar á sykurvörur.

Ef við lítum bara hlutlaus á málið, þá er dauði vegna offitu tengdra sjúkdóma, og fjárhagslegur kostnaður fyrir heilbrigðiskerfið, margfalt á við tóbaksnotkun og áfengis.

Hættið nú að væla um hversu dýrt sé að kaupa sykurinn ykkar og farið nú að versla hollan mat,  því jú hollari matur er að verða ódýrari en hinn óholli.

Posted By: Valgeir Helgi
Last Edit: 09 des. 2009 @ 03:49 e.h.

EmailPermalink
Tags
Categories: Stjórnmál


  • Það er algerlega stigsmunur á tóbaki, áfengi og sykri. Ég er ekki að segja að ég sé algerlega á móti sykurskattinum, en það er ekki hægt að segja ,,hækkum skatt/álögur á sykur jafnt álögum á tóbak því það er jafn óhollt". Þetta er ekki samanburðarhæft. Sykur og tóbak eiga lítið sameiginlegt þegar kemur að neyslu, ástæðum fyrir neyslu og áhrifum neyslu.

    @Gulli - flatur neysluskattur er ekki lausnin. Rétt eins og með aðra hluti er mikilvægt að forgangsraða. Það er ekki hægt að setja alla neyslu undir sama hatt. Eiga mjólkurvörur að vera með sama skatti/álögum og tóbak?
  • Þetta er neyslustýring og forsjárhyggja. Þetta eru sértækir skattar sem leggjast mjög misjafnt á fólk. Einn flatann neysluskatt, takk fyrir.
  • Ég er þér ósammála þar sem óhófleg neysla sykurs, tóbaks og áfengis veldur birgðum á heilbrigðiskerfið. Svo að við getum reynt að minnka það með verðstýringu, minnkað þá birgðirnar á kerfinu og það geti þá sinnt betur þeim vandamálum sem eru ekki heimatilbúin.
blog comments powered by Disqus

 Last 50 Posts
Change Theme...
  • Users » 1
  • Posts/Pages » 545
  • Comments » 578
Change Theme...
  • VoidVoid « Default
  • LifeLife
  • EarthEarth
  • WindWind
  • WaterWater
  • FireFire
  • LightLight

Um mig



    No Child Pages.

Gestabók



    No Child Pages.