09 okt. 2009 @ 3:30 f.h. 

Umræðan um myndina hans Helga Felixsonar, „Guð Blessi Ísland“, hefur ekki snúist mikið um hvað myndin fjallar og hvernig sýn myndin kastar á þetta ár sem er liðið. Heldur hefur umræðan snúist um hvort það hafi verið rétt hjá honum að hafaa myndavélina í gangi viðmælendum óafvitandi. Þeir hafi þar verið teknir á launi.

Rökin hafa verið þannig að meira slæmt sé af því að hljótast ef menn taka viðtöl við menn óafvitandi. Blaðamenn eigi erfiðara að nálgast viðmælendur þar sem þeir treysti sér ekki til þess að tjá sig yfirhöfuð þar sem þeir viti ekki hvort þeir séu „on“ eða „off the record“.

Ég er reyndar þessu ósammála þar sem ég tel að menn sem tala við fjölmiðla eigi að gera ráð fyrir því að vitna verð ávallt í þeirra orð og gjörðir. Við viljum fá hérna almennilega rannsóknarblaðamennsku, þar sem blaðamenn rannsaki alveg í kjölinn það sem misfarist hefur í samfélaginu okkar. Þeir að mínu mati eigi að vinna eftir þeim kjörorðum að þeir eru alltaf „on the record“.

Vissulegar eru gallar á því að vera alltaf reiðubúinn að nýta þær upplýsingar sem falla þeim í té, óháð því hvort menni segji „off the record“. Menn hafa séð þessa þróun í BNA, þar sem fjölmiðlar eru í alvörunni að vinna sína vinnu. Þeir hafa vissulega ákveðið ægisvald, þar sem þeir eru dagskrársetjandi. En ég held að þessi þróun mætti vera hér líka, í stað þessa blessaða „Já kór“ sem við höfum fengið að kynnast, þar sem útrásarvíkingarnir voru hylltir meira en allt, og m.a.s. þeim hlupið til varnar í  fjölmiðlunum.

Ef menn geta treyst því að þeir geti stjórnað því hvað fer í fjölmiðla með því að segja að þetta sé „off the record“ þá er strax byrjað að hefta möguleika fjölmiðla til aðhalds.

Líka ef við heimildarmyndargerð er bannað að nota leynilegar upptökur, hversu mikið geta þær þá fjallað um efnið sem þær eru að rannsaka. Við getum í raun gleymt því að þær myndir sem voru einna helst fræðandi um hverskonar spillingu í heiminum hafi verið gagnslausar.

Þeir sem vilja gagnrýna rang-gerðir annara og hafa möguleikan á því að standa vörð um almenning, verður að mínu mati að hafa þetta vopn í vopnabúrinu. Ef þú tekur þetta vopn frá, þá ertu búin að fjarlægja eitt af sterkustu upplýsingarvopnum sem fjölmiðlar hafa. Við getumekki alltaf treyst á það að skjölum sé ekki eytt og upplýsingum breytt. Við verðum að hafa fjölmiðla sem hafa þau vopn til staðar að vernda almenning.

Ég styð Helga Felixson í því að taka myndir í laumi, og ná þannig að berja úr hendi vopn almannatengla og ímyndarráðgjafa auðmanna.

Posted By: Valgeir Helgi
Last Edit: 09 okt. 2009 @ 03:30 f.h.

EmailPermalinkView Comments
Tags
Categories: Bíó, Stjórnmál
 05 sept. 2009 @ 4:17 f.h. 

Ég hef gert það áður að blogga um ákveðnar myndir sem mér hlakkar til að sjá og ákvað að halda þeirri góðri hefð áfram. Í þetta skipti eru einar fimm myndir sem mig klæjar eftir að sjá. Tel þær hérna upp í engri ákveðni röð og hef set trailer fyrir þær.

Law abiding citizen
Útgáfudagur: 6.nóvember 2009
Aðalleikararar: Gerard Butler og Jaime Foxx
Leikstjóri: F. Gary Gray
Plottið: Fjölskyldufaðir (Butler) missir fjölskyldu sína í húsbroti og leitar hefnda eftir að einn af morðingjunum fær að sleppa eftir samning við saksóknarann (Foxx). Hann ákveður að hefna sín á saksóknaranum og réttarkerfinu.
Afhverju: Þessi mynd sýnir gamla góða Butler í nýrri mynd. Harðhausinn er kominn aftur. Mæli með því að þið skoðið myndbandið.

Boondock Saints II: All Saints DayAll Saints Day reviewsAll Saints Day reviews
Útgáfudagur: Áætluð í byrjun 2010
Aðalleikararar: Sean Patrick Flanery, Norman Reedus, Julie Benz, Clifton Collins Jr., Peter Fonda, Billy Connolly og Judd Nelson
Leikstjóri: Troy Duffy
Plottið: Þrír menn (Flanery, Reedus og Connolly) sjá um að hreins í burt skítinn sem er í samfélaginu. Drepa þeir alla þá sem eru viðrinir glæpasamtökum.
Afhverju: Fyrri myndin (Boondock SaintsBoondock Saints reviewsBoondock Saints reviews) er án ef ein af bestu myndum sem ég hef séð, og því verð ég að sjá þessa. Þó mun ég sakna þess að Willem Dafoe er ekki í þessari. Við skulum bara vona að Julie Benz (úr DexterDexter reviewsDexter reviews) sem leikur nema Dafoe úr fyrri myndinn standi sig í stykkinu.

District 9
Útgáfudagur: 12. september 2009
Aðalleikarar: Sharlto Copley, Jason Cope, Nathalie Boltt, Sylvaine Strike, Elizabet Mkandawie og John Summer
Leikstjóri: Neil Blomkamp
Plottið: Flóttamenn frá geimnum sem búa í niðurníddu hverfi í S-Afríku, finna tilfinningatengsl við útsendara ríkissins sem hefur komist í snertingu við líftæknivopn þeirra. Út frá því hefst sagan.
Afhverju: Þessi mynd hefur verið dásömuð af þúsundum manneskja á TwitterTwitterTwitter og líka af gagnrýnendum. Trailerinn lofar mjög góðu.

Guð Blessi Ísland
Útgáfudagur: 6. nóvember 2009
Aðalleikarar: Almenningur og hrunskóngar
Leikstjóri: Helgi Felixson
Plottið: Heimildarmynd sem er tekinn upp á meðan hrunið gengur yfir og rústirnar eftir þær.
Afhverju: Þetta er fyrsta heimildarmyndin sem kemur út um hrunið og búsáhaldabyltinguna. Helgi Felixson sem vinnur að þessu hefur unnið að mörgum heimildarmyndum áður, og miðað við þær þá er von á góðri heimildarmynd.

2012
Útgáfudagur: 13. nóvember 2009
Aðalleikarar: Amanda Peet, Danny Glover, John Cusack, Thandie Newton, Woody Harrelson, Chiwetel Ejiofor
Leikstjóri: Roland Emmerich
Plottið: Heimurinn er að farast og bara spurning um hverjir lifa af hörmungarnar.
Afhverju: Trailerinn lofar rosalega góðu, og Roland Emmerich hefur ekki beint verið þekktur fyrir að setja út stórslysamyndir í hálfkáki. En það sem lofar því bestu við þessa mynd er að hún er sú seinasta í flokki stórslysamynda sem Emmerich gerir. Svo ekki sé minnst á grafíkina í myndinni, sem væri nú nóg eitt og sér að sjá myndina.

Þið megið alveg endilega bæta við þeim myndum sem þið eruð að bíða eftir í athugasemdunum.

Posted By: Valgeir Helgi
Last Edit: 08 sept. 2009 @ 02:18 f.h.

EmailPermalinkView Comments
Tags
Categories: Bíó, Video

 Last 50 Posts
Change Theme...
  • Users » 1
  • Posts/Pages » 545
  • Comments » 578
Change Theme...
  • VoidVoid « Default
  • LifeLife
  • EarthEarth
  • WindWind
  • WaterWater
  • FireFire
  • LightLight

Um mig



    No Child Pages.

Gestabók



    No Child Pages.