Í júlí tilkynnti GoogleGoogle það að það ætlaði að fara að framleiða sitt eigi stýrikerfi. Þessi frétt þótti með þeim stærstu í tölvubransanum og fékk nána umfjöllun á helstu sjónvarpsfréttum heims. Núna rúmum 3 mánuðum seinna er komið sýniseintak af stýrikerfinu og hvernig það mun virka. Í raun er erfitt að kalla stýrikerfið stýrikerfi, einfaldlega vegna þess að að í því verður ekkert annað en vefskoðari. Jebb, það verður enginn möguleik (til að byrja með) að hlaða inn forritum, s.s. ekkert office, msn eða neitt annað. Notendur þessa stýrikerfis verða nýta sér eingöngu þau forrit sem eru í boði á netinu. Þó tölvan verði netlaus, þá er nú samt hægt að vinna á henni þökk sé Google Gears.
Það sem er frekar töff við þetta stýrikerfi eru einna fimm hlutir, og þeir eru;
að það mun gera við sig sjálft ef það skemmist.
að þú þarft aldrei að uppfæra forrit, því þau eru jú á netinu.
að stýrikerfið sjálft mun gera við sig sjálft ef það skemmist.
að vefskoðarinn (ChromeChrome) er sjálft stýrikerfið.
að það verður alveg leiftursnöggt, sér í lagi þar sem engin forrit þurfa að ræsa sig upp í byrjun.
Stýrikerfið sjálft verður byggt fyrir „Netbooks“, þessar pinkulitlar. Þetta er ekki stýrikerfi sem er ætlað að keyra á borðtölvu. Stýrikerfið er hannað til þess að ganga á flash disk, og mun kerfið ekki hafa neina drivera til að styðjast við vegna þess. Chrome stýrikerfið verður hægt að keyra á lágmarks hörðum diski, í raun mun ekki þurfa neitt auka minni vegna þess að allt mun vera geymt á netinu sjálfu.
En hérna er myndband af manneskju að prófa það, svo að þið getið séð hvernig það mun virka. En athugið þó að það verður ekki komið í almenna notkun fyrr en eftir rúmt ár, jafnvel tvö.
Posted on : 21-11-2009 | By : Valgeir Helgi | In : Internet
EinEin reviews af helstu ástæðunum fyrir því að ég skrifa um þetta er sú að fólk bókstaflega fríkaði út og var verulega pirrað þegar FacebookFacebook breytti notendaútliti sínu. Mér sýnist breytingarnar vera bara til góðs hjá GoogleGoogle. Verið er að gera síðuna einfaldari í notkun og auka-valmöguleikar verða ekki eins faldir og þeir hafa verið. Hér fyrir neðan mun ég útlista betur hvernig breytingarnar verða hjá leitarvélinni. Athugið að þessar breytingar eru bara ný byrjaðar að rúlla út, og munu því ekki byrja að birtast hjá öllum strax. Einhver tími mun líða uns þetta verður komið í notkun hjá öllum.
Upphafs síðan hjá Google
Í fyrsta lagi þá verður upphafs síðunni breytt. Leitarhnappurinn og „freista gæfunnar“ verða fegraðir upp og málaðir blár. En um leið verða nánari leitarmöguleikar fjarlægðir, sem eru núna til hægri við slánna, og settir í betra form (sem útskýrist betur hér fyrir neðan). Mun þetta eiga góða samleið við þá breytingu sem nú þegar hefur verið gerð en þá var sjálf sláin stækkuð. Með þessu verður síðan gerði mun einfaldari og minnimalískari, meira þá í átt til þess hvernig hún var upprunalega þegar Google hóf sig til flugs.
Nýja niðurstöðusíðan hjá Google
Þegar búið er svo að slá inn leitarorðin þá mun seinni helmingur breytinganna koma í ljós. En þar er í raun einna helsta breytingin sem verður gerð á síðunni sjálfri. Eins og ég nefndi áður þá verða nánari leitarvalmöguleikar settir í þægilegri form. Vinstra meginn við sjálfa heimasíðuna mun koma hliðarstika með leitarvalmöguleikum, sem áður voru faldir í hlekkja formi, en verða nú hnappar. Þá verður auðsjáanlegra að leita að myndum, myndböndum o.fl.Með þessu verða niðurstöðurnar þægilegri í yfirlestri og því ætti tími sem fer í notkun á heimasíðunni sjálfri að minnka. Hlutur sem Google hefur verið að keppast við frá upphafi.
Nýja hliðarstikan hjá Google
Fyrir neðan hnappanna birtast svo tillögur um annað efni tengt því sem viðkomandi var að leita að, t.d. ef þú leitar eftir pizzu þá færðu tillögu um kjúkling, taco o.fl. Að lokum fyrir neðan það kemur upp valmöguleiki sem mér þykir skipta mestu máli og það er að geta leitað auðveldlega að efni eftir hversu nýtt það er. Ef eitthvað er að gerast í heiminum þá viltu finna sem nýjastar upplýsingar um það sem fyrst. Til merkis um það að Google er að reyna tengja niðurstöður sínar við nýjustu upplýsingar, til samræmis við það hafa Google (og Bing) gert samning um aðgang að stöðu uppfærslum og tengla dreifingum hjá TwitterTwitter. Google reyndi að fá aðgang að Facebook, en var hafnað, í stað þess gerði Facebook bara samning við Bing.
Sýnilegri leitartillögur
Allar þessar breytingar má væntanlega rekja til helsta samkeppnisaðila Google, BingBing leitarvélin frá Microsoft. En þeir hafa verið að auka við sig hlutdeild af leitarmarkaðinum hratt, en þó bara til að byrja með á kostnað YahooYahoo! og minni véla til að byrja með. Er því hægt að líta á þetta sem nokkurs konar fyrirfram aðgerða hjá Google til að koma í veg fyrir minni hlutdeild á leitarmarkaðinum.
Myndirnar og eitthvað af upplýsingum eru fengnar af síðunni Search Engine Land.
Þessi síða er áhugaverð upp á þann möguleika að hún opnar upp betur þær borgir sem hún er starfrækt í. Síðan gengur út á að fólk skoði betur þá borg sem það er statt í, þá með því að vinir mæli með einhverjum hlutum til að gera við hvorn annan. Hvort sem það eru tónleikar, veitingastaðir, búðir eða bara áhugaverðir staðir. Notendur geta svo unnið sér inn sýndarverðlaun eins og merki og fleira.
Fyrirtæki sem eru ennþá starfandi í Reykjavík ættu tvímælalaust að skoða þessa síðu þar sem þarna gefst þeim gott tækifæri að kynna starfsemi sína mjög ódýrt. Þá með því að annað hvort að gefa afslátt eða fá einfaldlega vini til þess að kynna það fyrir hvorum öðrum. Word of mouth er mjög stór fítus í þessari síðu.
Peter Cashmore er stofnandi síðunnar MashableMashable sem sérhæfir sig í fréttum af samfélagssíðum. Skrifaði hann í sinn vikulega dálk á CNN.com um hvernig næsta ár verður ár Foursquare, svona svipað og Twitter var ársins í ár. Þið getið lesið betur um síðuna hérna í grein hans; http://edition.cnn.com/2009/TECH/11/19/cashmore.foursquare/
Posted on : 18-11-2009 | By : Valgeir Helgi | In : Fótbolti, Internet
Hérna eru nokkrir góðir brandarar um liðið sem allir elska að hata
Yfirmaður verðlaunasafns Liverpool hefur ákveðið að fara á eftirlaun. Þegar hann var svo inntur eftir því hvaða helsta kost eftirmaðurinn hans ætti að bera, þá sagði hann; „Ég hugsa að það yrði best að hann yrði fornleifafræðingur að mennt.“
———————-
Hvað gera Liverpool-aðdáendur eftir að liðið hefur unnið enska meistartitillinn? Jú, standa upp og slökkva á Playstation!
———————-
Liverpool football club have announced that next year’s shirt sponsor will be Tampax. A spokesman for Tampax said, „To sponsor a bunch of cunts going through a bad period is exactly what our company is all about.“
———————-
Talibanar hafa gefið út þá yfirlýsingu að Osama Bin Laden sé ekki dauður og sýna því til sönnunnar myndband af honum.
Segir hann í því: „Til að sanna að ég sé enn á lífi þá get ég sagt ykkur það að Liverpool var ömurlegt á laugardaginn!“
Bresk stjórnvöld eru snögg til svars með því að segja: „Þetta myndband gæti verið nokkra mánaða gamalt og erfitt væri að tímasetja það.“
———————-
Ef þið kunnið fleiri þá megið þið alveg endilega bæta þeim við í athugasemdunum.
———————-
Annars er ég búinn að breyta heimasíðunni minni svo að hún sé auðlesanlegri og þægilegri í vafri. Endilega komið með feedback.
View Comments