Posted on : 20-11-2009 | By : Valgeir Helgi | In : Sjónvarp, Video
Auglýsingaplakat fyrir Chuck
Var að grufla á netinu í svefnleysi mínu og las þá snilldar frétt að þáttaserían „Chuckchuck reviews“ fái annan séns til að heilla áhorfendur. Í það minnsta kemur endir á seríuna og allir gætu orðið rólegir yfir enda sem setur ekki allt uppí háaloftið. Gott dæmi um þátt sme fékk annan séns er „JerichoJericho reviews„. Þar gekk það ekki eftir að auka vinsældir þáttaraðarinnar, en sögunni var lokað.
Mínar vonir, þúsundir annara nörda í BNA, glæddust verulega við þær fréttir að NBC pantaði „Chuck“ 13 aukaþætti (og seinna sex í viðbót við það) og sýningar á þeim hefjast aftur í janúar.
Ef þið eruð ekki að kveikja á perunni hvaða þáttur þetta er, þá er hérna smá myndbrot;
Birt hefur verið á CNN myndband þar sem ObamaObama reviews er að tala við fréttamann „off-the-record“ um verðlaunarhátíð MTV. Þá er minnst á það að Kanye WestKanye West reviews fór uppá svið og tók míkrafóninn af vinningshafanum og sagði að Beyoncebeyonce hefði átt að vinna.
En hérna eru myndböndin af þessu, fyrst af verðlaunarhátíðinni og svo af Obama.
Posted on : 10-09-2009 | By : Valgeir Helgi | In : Internet, Sjónvarp
Bara til að deila með ykkur aðferðum sem eru algjör snilld að nýta sér til þess að horfa frítt á sjónvarpsefni. Ég hef verið að nýta mér tvær snilldar síður, sérstaklega góðar upp á að horfa á efni. Líka ef maður kann ekki á Torrent.
Önnur þeirra er MyP2P, á þessari síðu er hægt að horfa beint á flest alla íþróttaleiki sem sýndir eru í á einhverri sjónvarpsstöð. Mjög fínt að nýta sér þetta ef það er byrjað að þrengjast í buddunni, og þú hefur ekki efni á Stöð2Sport.
Hin er SurfTheChannelSurfTheChannel.com, á þessari síðu er hægt að leita uppi flest alla sjónvarpsþætti. Síðan er mjög einföld í uppsetning og þú leitar bara efst að því sem þig langar að horfa á.
Eini gallinn við þessar síður er að efnið sem þeir tengla við getur verið í slæmum gæðum, en þá heldur maður bara áfram að leita.
Það er alltaf leiðinlegt þegar góðir þættir hætta. Núna er búið að tilkynna hvaða þættir verða áfram, og hvaða þættir er hættir.
Þið getið séð það mjög fljótt hvaða þættir eru að hætta, og hverjir eru nýjir, með því að smella á hérna, og til að sjá hvaða þættir halda áfram, hérna. Annars mæli ég með CAT, þetta er þjónusta þar sem þú skráir þig inn og velur þína þætti. Þá sérðu hvenær er sýning á þeim, mjög þægilegt fyrir þá sem nota SurfTheChannelSurfTheChannel.com eða torrentBit Torrent.
Ef þið notið svo Google Calendar, þá er hérna einföld leið fyrir ykkur að setja sjónvarps dagatalið inní það.
Endilega látið mig vita hvaða þættir þið eigið eftir að sjá eftir og hvaða þættir það eru sem þið eruð þakklát fyrir að halda áfram.
View Comments