Posted on : 09-12-2009 | By :
Valgeir Helgi | In :
Stjórnmál
Mér þykir það ótrúlega kjánalegt að heyra fólk vera að væla yfir því að ekki megi hækka skatt á vörum sem innihalda sykur, en það megi hækka skatta á tóbaki og áfengi vegna þeirra skaðlegra áhrifa sem það hefur á mannslíkamann og þann kostnað sem það hefur í för með sér fyrir heilbrigðiskerfið.
Ég, ólíkt mörgum öðrum, fagna þeirri ákvörðun að núna skuli vera settir sér skattar á sykurvörur.
Ef við lítum bara hlutlaus á málið, þá er dauði vegna offitu tengdra sjúkdóma, og fjárhagslegur kostnaður fyrir heilbrigðiskerfið, margfalt á við tóbaksnotkun og áfengis.
Hættið nú að væla um hversu dýrt sé að kaupa sykurinn ykkar og farið nú að versla hollan mat, því jú hollari matur er að verða ódýrari en hinn óholli.
Posted on : 25-11-2009 | By :
Valgeir Helgi | In :
Stjórnmál
Arion banki virðist ætla að hygla þeim útrásarvíkingum sem komu okkur á rassgatið, þá með því að fella niður skuldir á fyrirtækjum hjá þeim. Þó það fari einstaklega í taugarnar á mér, þá ætla ég samt ekki að gera þá forheimsku að umtalsefni mínu, frekar hvað ég vil sjá gert við fyrirtækið.
Í fyrsta lagi langar mig að 1998 ehf. verði gert gjaldþrota og yfirtekið af bankanum. Eftir að það er búið að gera það, þá vil ég sjá það hlutað niður í sjö hluta, sem yrðu eftirtaldir; Hagkaup, 10-11, Bónus, Aðföng, Bananar, Fersk kjötvara og svo smávöruverslanirnar.
Að þessu loknu væru hver og einn hluti settur upp til sölu og hámarkað verð hvers og eins hlutararins, en þó með því skilyrði að enginn einn einstaklingur eða fyrirtæki gæti keypt tvo hluta. Þannig yrðu búin til sjö sjálfstæð fyrirtæki.
Þjóðin öll myndi hagnast á þessu og fá þá raunverulega samkeppni sem hún er búin að vera að biðja um í áratugi.
Að þessu loknu, eða jafnvel strax færi efnahagsráðherrar í það að semja lög fyrir samkeppniseftirlitið þar sem skýrt er tekið fram að ekkert fyrirtæki í samkeppni megi vera með stærri en 33% af heildar markaði. Ef fyrirtæki sem brýtur gegn þess fengi í fyrstu viðvörun, næst sektir og að lokum yrði fyrirtækið tekið yfir og hlutað niður til þess að tryggja að það væri ekki yfir hámarki.
Þessar reglur eru all staðar í kringum okkur, þ.e.a.s. hámarks markaðshlutdeild. Við erum í raun ekki með þessi lög sem tryggja heilbrigði markaðarins, einfaldlega vegna þess að markaðurinn sjálfur átti að redda hlutunum hérna. Nýfrjálshyggja í sinni skýrustu mynd.
Posted on : 12-11-2009 | By :
Valgeir Helgi | In :
Stjórnmál
Ég var að flakka á TwitterTwitter
áðan og sá þá tilvísun í grein á bloggi hjá Hjalla í Datamarket. Í grein sinni útskýrir hann, og setur upp í myndrænt form skattkerfið, hvernig skattkerfið myndi reynast í raun. Tekur hann fyrir hvernig þrepaskattkerfið myndi kosta vinnuveitendur peninga og kalla eftir starfsmannaþörf í geira sem er nú þegar í vöntun á starfsmönnum, hugbúnaðarforritarar.
En það sem mér þykir áhugaverðast af þessu öllu er að í þrepakerfinu eru þessi hnúður sem menn tala um að sé vinnuletjandi og hægt væri að innheimta hærri tekjur fyrir ríkið og án þess að hafa kerfið vinnuletjandi. Væri hægt að gera það með því að hækka verulega persónuafsláttinn og tekjuskattinn verulega. Tekur hann gott dæmi um að ef persónuafslátturinn væri hækkaður uppí 58.500.- kr. og skatthlutfallið uppí 42,8%. Með þessu kæmi í raun sömu tekjurnar inn og við þrepakerfið, en stærsti kosturinn sem ég sé við það er að þau sem eru með tekjur undir 200.000.- kr. myndu borga lægri skatt en nú er, og myndu í raun borga 5.000.- kr. minna í skatt miðað við þrepakerfið.
Ég mæli með því að þið skoðið færsluna hjá Hjalla og prófið reiknilíkanið sem hann er með á síðunni. En hér er slóðin á færsluna hans: http://hjalli.com/2009/11/11/skattkerfid-reiknilikan/
En að lokum langar mig að minna á færsluna mína frá því gær, þar sem ég tek það fram að ég er á móti því að skattahækkanir verði litið framhjá í ljósi þess að ég og þeir sem eru mér yngri fá ekki bakreikninginn fyrir skuldir þeirra sem hafa komið á undan okkur. Sú færsla er hér: http://www.valgeirhelgi.com/2009/11/skattleggjum-%C3%BEa-sem-yngri-eru/
View Comments