Hættu nú að predika Gunnar

View Comments

Posted on : 23-09-2009 | By : Valgeir Helgi | In : Stjórnmál, Trúmál

Gunnar í Krossinum hefur verið sá maður sem hefur gengið einna harðast, hér á Íslandi, fram í því að menn lifi eftir guðsorði, í það minnsta eins og hann hefur túlkað það. Hann hefur ávallt sagt að hann túlki orðið eins og það er skrifað í Biblíuna, hann er s.s. bókstafstrúar maður. Hann hefur ekki vílað það fyrir sér að fordæma þá synd að manneskjur skuli leggjast í bólið með sama kyni.

Nú hefur Gunnar ákveðið að skilja við eiginkonuna sína. Hann ber fyrir sig að þau séu eigi ekki samleið lengur í lífinu, þá einna vegna þess að  þau eru að vinna í sitthvorum landshlutanum. Ég sjálfur segi að það sé hið fínasta mál, enda á fólk ekki að vera bundið fast í sambandi sem annar, eða hvorugur, aðillinn hefur áhuga á að vera í. En í Biblíunni sjálfri er sagt að það sem hann og tilvonandi fyrrverandi eiginkona hans eru að gera er í raun synd. Í henni stendur:

Fyrra Korintíubréf 7:10-11
„Þeim sem gengið hafa í hjónaband býð ég, þó ekki ég heldur Drottinn, að konan skuli ekki skilja við mann sinn, en hafi hún skilið við hann, þá sé hún áfram ógift eða sættist við manninn. Maðurinn á ekki heldur að skilja við konuna.“

Mig langar núna að biðja Gunnar að hætta að fordæma ást milli manneskja sem hann telur andstætt Biblíunni. Því hann hefur nú greinilega framið synd samkvæmt sinn heitt elskuðu Biblíunni og, syni guðs síns, Jesús frá Nazareth. Í beinni tilvitnun í orð Jesús, þá segir hann skýrt að Gunnar geti ei lengur kastað fram steini sínum. Hér er tilvitnunin:

Jóhannesarguðspjall 8:7
Og þegar þeir héldu áfram að spyrja hann rétti hann sig upp og sagði við þá: „Sá ykkar sem syndlaus er kasti fyrstur steini á hana.“

Gunnar, viltu nú fara að hætta að predika og leyfa góðu fólki að lifa í friði?