Posted on : 20-11-2009 | By : Valgeir Helgi | In : Sjónvarp, Video
Auglýsingaplakat fyrir Chuck
Var að grufla á netinu í svefnleysi mínu og las þá snilldar frétt að þáttaserían „Chuckchuck reviews“ fái annan séns til að heilla áhorfendur. Í það minnsta kemur endir á seríuna og allir gætu orðið rólegir yfir enda sem setur ekki allt uppí háaloftið. Gott dæmi um þátt sme fékk annan séns er „JerichoJericho reviews„. Þar gekk það ekki eftir að auka vinsældir þáttaraðarinnar, en sögunni var lokað.
Mínar vonir, þúsundir annara nörda í BNA, glæddust verulega við þær fréttir að NBC pantaði „Chuck“ 13 aukaþætti (og seinna sex í viðbót við það) og sýningar á þeim hefjast aftur í janúar.
Ef þið eruð ekki að kveikja á perunni hvaða þáttur þetta er, þá er hérna smá myndbrot;
Posted on : 20-11-2009 | By : Valgeir Helgi | In : Stjórnmál, Video
Var á PöbQuizi hjá UjH í kvöld, og ég verð að segja að það kom mér alveg skemmtilega á óvart hversu margir mættu og ákváðu seinna meir að slá til og taka þátt. Ég taldi mörg þéttsetin borð.
Ég og Dagbjört Gunnars. vorum saman í liði og stóðum okkur þokkalega vel, miðað við að okkar kunnátta á landafræði mætti vera greinilega betri. En við náðum 14 af 30 spurningum réttum, og megum sátt við sitja. En ég er smá fúll yfir nokkrum klúðrum hjá mér. Sigurvegarar kvöldsins voru með 19 réttar og unnu sér inn veglegra verðlauna. En það er þó mest gaman bara að taka þátt í þessu.
Hérna eru annars tvö myndbönd sem ég tók á keppninni og þó þau séu svolítið dökk, þá sést nú eitthvað á þeim, en það má greinilega heyra stemminguna sem var á staðnum.
Posted on : 27-10-2009 | By : Valgeir Helgi | In : Stjórnmál, Video
Það er greinilega stór frétt í útlöndum, og hér, að McDonalds vörumerki sé að hætta hérna. Það eru líka rosalega margir sem kveðja vörumerkið með harmkveini, eða fögnuði. Ég fyrir mínar sakir á ekki eftir að sakna þess að geta fengið mér múrstein í magann. Þetta eru að mínu mati einhver versti skyndibiti sem hægt er að fá sér, á eftir matnum á BSÍ. Þó McDonalds sé mismunandi hversu vel, eða illa, hann leikur við bragðlauka hvers og eins, þá er hann alveg einstaklega óhollur fyrir hvern þann sem lætur hann í munn sér. Hægt er að benda á góða heimildarmynd þar sem farið var yfir hversu óhollur hann er fyrir líkamann. Heimildarmyndin var vel vinsæl hér, og annar staðar í heiminum, myndin heitir „Super size meSuper Size Me reviews„. Hérna er kynningarmyndbandið fyrir myndina.
Þó að ég hafi talið allt upp hérna að ofan, þá er ég ekki einn þeirra sem vildu banna þennan stað til þess að bæta heilsu fólks, því það er margt fleira sem er ekki hollt. Þess til sönnunnar þarf ekki að hlaupa langt, gott dæmi er Nonnabátur, Hlölli, Pizza Hut, Hrói Höttur og margt margt fleira.
Það sem fer í taugarnar á mér er að erlendir fjölmiðlar taka þetta sem merki um hversu illa statt Ísland sé. En þeir taka hvergi fram að það eru reglur McDonalds sem valda því að þeir séu að hætta hér á landi. Með því að neyða leyfishafann til að versla allar sínar vörur frá Þýskalandi. Þó að hagstæðara væri að nýta innlenda vöru í framleiðslu skyndibitans, sem og rekstraraðilinn ætlar að gera hjá vörumerkinu sem tekur við, MetroMetro reviews. Því í raun er það ekki íslenska efnahaginum algjörlega að kenna að McDonalds hætti, frekar viljaleysi eiganda vörumerkisins til að leyfa rekstraraðilum að kaupa innlent hráefni og útbúa það svo að stöðlum sínum.
AnnaAnna reviewsð sem fer verulega í taugarnar hjá mér er að í öllum erlendum fjölmiðlum er talað um að eigandi vörumerkisins hafi ákveðið að hætta hérna á Íslandi, frekar en að taka það fram að það er rekstraraðillinn sem ákveður að hætta með merkið. McDonalds er í raun ekki ákvörðunnartakinn, frekar er þetta ísl. ákvörðun með sátt við McDonalds.
Að lokum er pirringur minn yfir því að ekki er tekið fram í neinum af þessum erlendu fjölmiðlum að þó að vörumerkið fari, þá mun annað koma í staðinn. Fólk mun halda vinnunni sinni og við munum í raun græða á þessu þar sem innlendir framleiðendur fá meira fyrir sinn snúð.
Þetta er því ekki alslæm frétt fyrir Ísland, fremur væri hægt að líta á hana í góðu ljósi efnahagslega séð. Þó ekki sé talað um heilbrigðislegum sjónarmiðum.
Skemmtilegur punktur í viðbót væri að við erum ekki lengur í McDonalds-friðarstuðlinum. Friðarstuðulinn gengur út á að ekkert land sem er McDonalds starfandi í landinu sýnu hefur farið í stríð við annað sem er líka með keðjuna hjá sér. Kannski kominn tími til að sanna að þessi stuðull er bara kjánaleg staðreynd. Við getum núna verið svarti svanurinn sem afsannar kennninguna.
En hver er þín skoðun á þessu? Deildu því með mér, þá annað hvort með athugasemd eða í könnunni hér fyrir neðan.
Birt hefur verið á CNN myndband þar sem ObamaObama reviews er að tala við fréttamann „off-the-record“ um verðlaunarhátíð MTV. Þá er minnst á það að Kanye WestKanye West reviews fór uppá svið og tók míkrafóninn af vinningshafanum og sagði að Beyoncebeyonce hefði átt að vinna.
En hérna eru myndböndin af þessu, fyrst af verðlaunarhátíðinni og svo af Obama.
View Comments