FoursquareFoursquare
er sú síða sem er talin taka við af TwitterTwitter
, og nú hefur hún opnað síðuna sína fyrir Reykjavík.
Þessi síða er áhugaverð upp á þann möguleika að hún opnar upp betur þær borgir sem hún er starfrækt í. Síðan gengur út á að fólk skoði betur þá borg sem það er statt í, þá með því að vinir mæli með einhverjum hlutum til að gera við hvorn annan. Hvort sem það eru tónleikar, veitingastaðir, búðir eða bara áhugaverðir staðir. Notendur geta svo unnið sér inn sýndarverðlaun eins og merki og fleira.
Fyrirtæki sem eru ennþá starfandi í Reykjavík ættu tvímælalaust að skoða þessa síðu þar sem þarna gefst þeim gott tækifæri að kynna starfsemi sína mjög ódýrt. Þá með því að annað hvort að gefa afslátt eða fá einfaldlega vini til þess að kynna það fyrir hvorum öðrum. Word of mouth er mjög stór fítus í þessari síðu.
Peter Cashmore er stofnandi síðunnar MashableMashable
sem sérhæfir sig í fréttum af samfélagssíðum. Skrifaði hann í sinn vikulega dálk á CNN.com um hvernig næsta ár verður ár Foursquare, svona svipað og Twitter var ársins í ár. Þið getið lesið betur um síðuna hérna í grein hans; http://edition.cnn.com/2009/TECH/11/19/cashmore.foursquare/
Var að grufla á netinu í svefnleysi mínu og las þá snilldar frétt að þáttaserían „Chuckchuck reviews
“ fái annan séns til að heilla áhorfendur.
Í það minnsta kemur endir á seríuna og allir gætu orðið rólegir yfir enda sem setur ekki allt uppí háaloftið. Gott dæmi um þátt sme fékk annan séns er „JerichoJericho reviews
„. Þar gekk það ekki eftir að auka vinsældir þáttaraðarinnar, en sögunni var lokað.
Mínar vonir, þúsundir annara nörda í BNA, glæddust verulega við þær fréttir að NBC pantaði „Chuck“ 13 aukaþætti (og seinna sex í viðbót við það) og sýningar á þeim hefjast aftur í janúar.
Ef þið eruð ekki að kveikja á perunni hvaða þáttur þetta er, þá er hérna smá myndbrot;
Var á PöbQuizi hjá UjH í kvöld, og ég verð að segja að það kom mér alveg skemmtilega á óvart hversu margir mættu og ákváðu seinna meir að slá til og taka þátt. Ég taldi mörg þéttsetin borð.
Ég og Dagbjört Gunnars. vorum saman í liði og stóðum okkur þokkalega vel, miðað við að okkar kunnátta á landafræði mætti vera greinilega betri. En við náðum 14 af 30 spurningum réttum, og megum sátt við sitja. En ég er smá fúll yfir nokkrum klúðrum hjá mér. Sigurvegarar kvöldsins voru með 19 réttar og unnu sér inn veglegra verðlauna. En það er þó mest gaman bara að taka þátt í þessu.
Hérna eru annars tvö myndbönd sem ég tók á keppninni og þó þau séu svolítið dökk, þá sést nú eitthvað á þeim, en það má greinilega heyra stemminguna sem var á staðnum.
Ég er víst að fara að flytja í miðbæinn ógurlega og menn hafa víst verið með uppi þá getgátu að ég muni drekka mun meira af áfengi en ég geri nú þegar. Svo að menn viti það fyrir víst þá er það ekki að fara að gerast. Ef eitthvað er þá mun ég drekka minna þar sem ég einfaldlega nenni ekki að drekka.
————
Þessi færsla var tileinkuð Jóhanni Wium og Eyjólfi Karli Eyjólfssyni.

Categories
Tag Cloud
Blog RSS
Comments RSS
Last 50 Posts
Back
Back
Void « Default
Life
Earth
Wind
Water
Fire
Light 