EinEin reviews
af helstu ástæðunum fyrir því að ég skrifa um þetta er sú að fólk bókstaflega fríkaði út og var verulega pirrað þegar FacebookFacebook
breytti notendaútliti sínu. Mér sýnist breytingarnar vera bara til góðs hjá GoogleGoogle
. Verið er að gera síðuna einfaldari í notkun og auka-valmöguleikar verða ekki eins faldir og þeir hafa verið. Hér fyrir neðan mun ég útlista betur hvernig breytingarnar verða hjá leitarvélinni. Athugið að þessar breytingar eru bara ný byrjaðar að rúlla út, og munu því ekki byrja að birtast hjá öllum strax. Einhver tími mun líða uns þetta verður komið í notkun hjá öllum.
Í fyrsta lagi þá verður upphafs síðunni breytt. Leitarhnappurinn og „freista gæfunnar“ verða fegraðir upp og málaðir blár. En um leið verða nánari leitarmöguleikar fjarlægðir, sem eru núna til hægri við slánna, og settir í betra form (sem útskýrist betur hér fyrir neðan). Mun þetta eiga góða samleið við þá breytingu sem nú þegar hefur verið gerð en þá var sjálf sláin stækkuð. Með þessu verður síðan gerði mun einfaldari og minnimalískari, meira þá í átt til þess hvernig hún var upprunalega þegar Google hóf sig til flugs.
Þegar búið er svo að slá inn leitarorðin þá mun seinni helmingur breytinganna koma í ljós. En þar er í raun einna helsta breytingin sem verður gerð á síðunni sjálfri. Eins og ég nefndi áður þá verða nánari leitarvalmöguleikar settir í þægilegri form. Vinstra meginn við sjálfa heimasíðuna mun koma hliðarstika með leitarvalmöguleikum, sem áður voru faldir í hlekkja formi, en verða nú hnappar. Þá verður auðsjáanlegra að leita að myndum, myndböndum o.fl.Með þessu verða niðurstöðurnar þægilegri í yfirlestri og því ætti tími sem fer í notkun á heimasíðunni sjálfri að minnka. Hlutur sem Google hefur verið að keppast við frá upphafi.
Fyrir neðan hnappanna birtast svo tillögur um annað efni tengt því sem viðkomandi var að leita að, t.d. ef þú leitar eftir pizzu þá færðu tillögu um kjúkling, taco o.fl. Að lokum fyrir neðan það kemur upp valmöguleiki sem mér þykir skipta mestu máli og það er að geta leitað auðveldlega að efni eftir hversu nýtt það er. Ef eitthvað er að gerast í heiminum þá viltu finna sem nýjastar upplýsingar um það sem fyrst. Til merkis um það að Google er að reyna tengja niðurstöður sínar við nýjustu upplýsingar, til samræmis við það hafa Google (og Bing) gert samning um aðgang að stöðu uppfærslum og tengla dreifingum hjá TwitterTwitter
. Google reyndi að fá aðgang að Facebook, en var hafnað, í stað þess gerði Facebook bara samning við Bing.
Allar þessar breytingar má væntanlega rekja til helsta samkeppnisaðila Google, BingBing
leitarvélin frá Microsoft. En þeir hafa verið að auka við sig hlutdeild af leitarmarkaðinum hratt, en þó bara til að byrja með á kostnað YahooYahoo!
og minni véla til að byrja með. Er því hægt að líta á þetta sem nokkurs konar fyrirfram aðgerða hjá Google til að koma í veg fyrir minni hlutdeild á leitarmarkaðinum.
Myndirnar og eitthvað af upplýsingum eru fengnar af síðunni Search Engine Land.




![Reblog this post [with Zemanta]](http://img.zemanta.com/reblog_e.png?x-id=9f1631a6-8e96-4541-bfa8-0515d3c53048)
View Comments