21 nóv. 2009 @ 7:20 f.h. 

Í júlí tilkynnti GoogleGoogleGoogle það að það ætlaði að fara að framleiða sitt eigi stýrikerfi. Þessi frétt þótti með þeim stærstu í tölvubransanum og fékk nána umfjöllun á helstu sjónvarpsfréttum heims. Núna rúmum 3 mánuðum seinna er komið sýniseintak af stýrikerfinu og hvernig það mun virka. Í raun er erfitt að kalla stýrikerfið stýrikerfi, einfaldlega vegna þess að að í því verður ekkert annað en vefskoðari. Jebb, það verður enginn möguleik (til að byrja með) að hlaða inn forritum, s.s. ekkert office, msn eða neitt  annað. Notendur þessa stýrikerfis verða nýta sér eingöngu þau forrit sem eru í boði á netinu. Þó tölvan verði netlaus, þá er nú samt hægt að vinna á henni þökk sé Google Gears.

Forrit í Google Chrome

Það sem er frekar töff við þetta stýrikerfi eru einna fimm hlutir, og þeir eru;

  1. að það mun gera við sig sjálft ef það skemmist.
  2. að þú þarft aldrei að uppfæra forrit, því þau eru jú á netinu.
  3. að stýrikerfið sjálft mun gera við sig sjálft ef það skemmist.
  4. að vefskoðarinn (ChromeChromeChrome) er sjálft stýrikerfið.
  5. að það verður alveg leiftursnöggt, sér í lagi þar sem engin forrit þurfa að ræsa sig upp í byrjun.

Stýrikerfið sjálft verður byggt fyrir „Netbooks“, þessar pinkulitlar. Þetta er ekki stýrikerfi sem er ætlað að keyra á borðtölvu. Stýrikerfið er hannað til þess að ganga á flash disk, og mun kerfið ekki hafa neina drivera til að styðjast við vegna þess. Chrome stýrikerfið verður hægt að keyra á lágmarks hörðum diski, í raun mun ekki þurfa neitt auka minni vegna þess að allt mun vera geymt á netinu sjálfu.

En hérna er myndband af manneskju að prófa það, svo að þið getið séð hvernig það mun virka. En athugið þó að það verður ekki komið í almenna notkun fyrr en eftir rúmt ár, jafnvel tvö.

Reblog this post [with Zemanta]
Posted By: Valgeir Helgi
Last Edit: 21 nóv. 2009 @ 07:30 f.h.

EmailPermalinkView Comments
Tags
 21 nóv. 2009 @ 2:44 f.h. 

EinEin reviewsEin reviews af helstu ástæðunum fyrir því að ég skrifa um þetta er sú að fólk bókstaflega fríkaði út og var verulega pirrað þegar FacebookFacebookFacebook breytti notendaútliti sínu. Mér sýnist breytingarnar vera bara til góðs hjá GoogleGoogleGoogle. Verið er að gera síðuna einfaldari í notkun og auka-valmöguleikar verða ekki eins faldir og þeir hafa verið. Hér fyrir neðan mun ég útlista betur hvernig breytingarnar verða hjá leitarvélinni. Athugið að þessar breytingar eru bara ný byrjaðar að rúlla út, og munu því ekki byrja að birtast hjá öllum strax. Einhver tími mun líða uns þetta verður komið í notkun hjá öllum.

Upphafs síðan hjá Google

Upphafs síðan hjá Google

Í fyrsta lagi þá verður upphafs síðunni breytt. Leitarhnappurinn og „freista gæfunnar“ verða fegraðir upp og málaðir blár. En um leið verða nánari leitarmöguleikar fjarlægðir, sem eru núna til hægri við slánna, og settir í betra form (sem útskýrist betur hér fyrir neðan). Mun þetta eiga góða samleið við þá breytingu sem nú þegar hefur verið gerð en þá var sjálf sláin stækkuð. Með þessu verður síðan gerði mun einfaldari og minnimalískari, meira þá í átt til þess hvernig hún var upprunalega þegar Google hóf sig til flugs.

Nýja niðurstöðusíðan hjá Google

Nýja niðurstöðusíðan hjá Google

Þegar búið er svo að slá inn leitarorðin þá mun seinni helmingur breytinganna koma í ljós. En þar er í raun einna helsta breytingin sem verður gerð á síðunni sjálfri. Eins og ég nefndi áður þá verða nánari leitarvalmöguleikar settir í þægilegri form. Vinstra meginn við sjálfa heimasíðuna mun koma hliðarstika með leitarvalmöguleikum, sem áður voru faldir í hlekkja formi, en verða nú hnappar. Þá verður auðsjáanlegra að leita að myndum, myndböndum o.fl.Með þessu verða niðurstöðurnar þægilegri í yfirlestri og því ætti tími sem fer í notkun á heimasíðunni sjálfri að minnka. Hlutur sem Google hefur verið að keppast við frá upphafi.

Nýja hliðarstikan hjá Google

Nýja hliðarstikan hjá Google

Fyrir neðan hnappanna birtast svo tillögur um annað efni tengt því sem viðkomandi var að leita að, t.d. ef þú leitar eftir pizzu þá færðu tillögu um kjúkling, taco o.fl. Að lokum fyrir neðan það kemur upp valmöguleiki sem mér þykir skipta mestu máli og það er að geta leitað auðveldlega að efni eftir hversu nýtt það er. Ef eitthvað er að gerast í heiminum þá viltu finna sem nýjastar upplýsingar um það sem fyrst. Til merkis um það að Google er að reyna tengja niðurstöður sínar við nýjustu upplýsingar, til samræmis við það hafa Google (og Bing) gert samning um aðgang að stöðu uppfærslum og tengla dreifingum hjá TwitterTwitterTwitter. Google reyndi að fá aðgang að Facebook, en var hafnað, í stað þess gerði Facebook bara samning við Bing.

Sýnilegri leitartillögur

Sýnilegri leitartillögur

Allar þessar breytingar má væntanlega rekja til helsta samkeppnisaðila Google, BingBingBing leitarvélin frá Microsoft. En þeir hafa verið að auka við sig hlutdeild af leitarmarkaðinum hratt, en þó bara til að byrja með á kostnað YahooYahoo!Yahoo! og minni véla til að byrja með. Er því hægt að líta á þetta sem nokkurs konar fyrirfram aðgerða hjá Google til að koma í veg fyrir minni hlutdeild á leitarmarkaðinum.

Myndirnar og eitthvað af upplýsingum eru fengnar af síðunni Search Engine Land.

Reblog this post [with Zemanta]
Posted By: Valgeir Helgi
Last Edit: 21 nóv. 2009 @ 02:44 f.h.

EmailPermalinkView Comments
Tags

 Last 50 Posts
Change Theme...
  • Users » 1
  • Posts/Pages » 545
  • Comments » 578
Change Theme...
  • VoidVoid « Default
  • LifeLife
  • EarthEarth
  • WindWind
  • WaterWater
  • FireFire
  • LightLight

Um mig



    No Child Pages.

Gestabók



    No Child Pages.