Um mig
Ég er fæddur þann 4. júlí 1982 á Landspítalanum að morgni til þennan þjóðhátíðardag Bandaríkjanna, NorðurAmeríku. En með því að fæðast þennan stórmerkilega dag þá á ég líka þann vafasama heiður að trufla áhorf föður míns á Heimsmeistaramótið á Spáni sem var í fullum gangi. En hann hefur örugglega fyrirgefið mér það.
Eftir smá veru á spítalanum fór ég með foreldrum mínum heim í Bústaðarhverfið, réttara sagt Ásgarðinn. En þar átti ég að eftir að fá viðurnefnið Valli Víkingur. Það nafn fylgdi mér alla leið inní Hafnarfjörðinn og í gegnum Breiðholtið. En þó datt það snögglega af mér þegar ég var kominn þangað sem ég vill kalla heim, s.s. Hafnarfjörður. Er ég nú búinn að búa í Hafnarfirði síðan ‘87, s.s. öll nema fyrstu fimm æviárinn. Ég byrjaði að æfa fótbolta með besta liði Íslands (sama hvað aðrir segja) Fimleikafélag Hafnarfjarðar (F.H.), svo nafnið Valli víkingur fauk eftir það, og í raun eftir Valla víking hefur bara eitt viðurnefni fest á mig, það er „Hvar er Valli?“.
Þrátt fyrir að hafa lifað svona stórann hluta af minni ævi í Hafnarfirði, þá telst ég enn til aðkomu manna og mun aldrei vinna mér inn þann titil að vera Gaflari, er ég í raun a.a. sem er aðfluttur andskoti. Ég bý enn í Hafnarfirðinum.
Skólagangan mín er búinn ganga ágætlega fyrir sig, ef reiknað er með eðlilegri biðstöðu, eins og ég vil segja það. Öll mín grunnskólaár frá ‘87 til ‘98 sótti ég Viðistaðaskóla. Þar átti ég í vissri útistöðu við kennara og aðra nemendur, en það er allt gleymt, grafið og fyrirgefið í dag frá minni hlið séð.
Eftir það tók við nám í Fjölbraut í Garðabæ frá ‘98 til ‘00, tók mér þá frí, ef ekki er með talið árið í Fjölbraut við Ármúla þar sem ég sinnti öllu betur en náminu, enda engin eining sem stóð uppúr því. Eftir F.Á. byrjaði ég ekki aftur fyrr en vorið ‘04 og ákvað að klára þetta nú einu sinni og drífa mig áfram í skólanum. Enda gerði ég það með því að klára 72e. á þremur önnum og útskrifaðist vorið ‘05 af Félagsfræðibraut. Áskotnaðist mér þó þann heiður við útskriftina að fá verðlaun fyrir frábæran árangur í ensku.
Eftir Framhaldsskólann var farið í nám við Stjórnmálafræði í Háskóla Íslands. Sem ég er enn að stunda en ég mun þó klára á réttum tíma næsta vor. En eitt er víst og það er að ég blómstraði ekkert smá út við það að fara í Háskólann. Því að loknum þessum tveimur árum hefur drengur eins og ég sem stundaði ekkert skipulagt félagslíf síðan í grunnskóla afrekað nokkra hluti. En þeir eru:
- Formaður Politica, nemendafélags stjórnmálafræðinema.
- Ritstjóri Íslensku Leiðarinnar sem er fræðirit nemendafélags stjórnmálafræðinema.
- Áheyrnarfulltrúi í skoraráði stjórnmálafræðinnar.
- Meðstjórnandi í Röskvu, samtök félagshyggjufólks við H.í.
- Setið í sjötta sæti á framboðslista Röskvu til Háskólaráðs.
Síðan fór ég líka að skipta mér að bæjar – og landspólitíkinni, og er hér nú listi yfir þær stöður sem ég hef setið í:
2006-2008: Meðstjórnandi í miðstjórn Uj
2006-2007: Meðstjórnandi hjá UjH
2008-????: Gjaldkeri Uj
2008-????: Formaður UjH
2008-????: 2. varformaður Varðbergs
En ef einhver þarf að ná í mig þá eru hérna helstu upplýsingar um mig:
Nafn: Valgeir Helgi Bergþórsson
Heimilisfang: Háabarð 15, 220 Hafnarfjörður
Tölvupóstur: valgeirhelgi(hjá)gmail.com
Msn-samskiptaforrit: valgeirhelgi(hjá)gmail.com (Nóg er að smella á hlekkinn til að bæta mér við á msn)
Skype: valgeir.helgi
Gsm-númer: 692-7041
Facebook: http://www.facebook.com/valgeirhelgi
Twitter: http://twitter.com/valgeirhelgi